Við á Hnoðraholti vorum svo lánsöm að fá góða gesti í gær. Hún Magga Pála okkar kom ásamt góðri vinkonu, henni Laufeyju Sigurðardóttur fiðluleikara. Þær sungu með okkur nokkur falleg jólalög og léku undir á fiðlu og gítar. Börnin undu sér vel og sum dilluðu sér með og gerðu hreyfingar í takt. Við skemmtum okkur svo vel og þökkum við kærlega fyrir okkur.