Innskráning í Karellen
news

Hjallastefnan Heima

15. 04. 2020

Kæru foreldrar og forráðamenn!

Hjallastefnan er ótrúlega stolt að kynna nýtt hlaðvarp: Hjallastefnan heima.

Hjallastefnan heima er ætlað að vera stuðningur við barnafjölskyldur og gera fjölskyldulífið og uppeldið ánægjulegra.

Við deilum lykilþáttum í hugmyndafræði Hjallastefnunnar sem við vitum að virkar vel í öllum aðstæðum.

Í þáttunum er rætt við skólastýrur, kennara, foreldra og aðra góða gesti sem veita góð ráð sem nýtast heima fyrir.

Þátturinn er nú aðgengilegur á Spotify og öðrum hlaðvarpsveitum en við vonum að þið njótið að hlusta og endilega deilið áfram og gefið þættinum einkunn ásamt umsögn í podcast appinu.

https://open.spotify.com/episode/35s79T2N4py5nnRsdFz2f1…

https://podcasts.apple.com/…/1-r%C3%B6%C3%B0-…/id1506932428…

Hvetjum ykkur til að hlusta á fyrsta þáttinn

#1 Röð, regla og rútína

Jensína Edda Hermannsdóttir er vinkona þáttarins og ræðir við okkur um mikilvægi röð, reglu og rútínu og hvernig hægt sé að nýta hugmyndafræði Hjallastefnustefnunnar heima fyrir. Jensína er skólastýra á Laufásborg og býr yfir 20 ára reynslu í starfi með börnum. Hún deilir allskyns fróðleik og heilandi skilaboðum til foreldra á þessum krefjandi tímum.

Sömuleiðis heyrum við í framkvæmdastjóra Hjallastefnunnar, Þórdísi Jónu Sigurðardóttur, en hún segir okkur frá Hjallastefnunni og þeirri ákvörðun að hefja hlaðvarp.

© 2016 - Karellen