Okkur á Bláa kjarna finnst rosa notalegt að hefja hópatímann á smá teygjum og slökun. Vinkonur sitja í hring með hópstjóra, teygja hendur upp í loft og niður í gólf, kjarna svo hendur og fætur og segja: “ommm...” og enda síðan á að leggjast á gólfið, slaka á og telja upp að tíu á íslensku, ensku og spænsku.