Innskráning í Karellen
news

Áræðnilotan❤️

12. 03. 2023

Á morgun mánudag hefst áræðnilotan sem er sjötta og síðasta lota skólaársins, lotulyklarnir sem við vinnum með eru kjarkur, kraftur, virkni og frumkvæði. Þessari síðustu lotu er ætlað að reka smiðshöggið á heildarstarf vetrarins hvað varðar persónuþroska, bæði í einstaklings- og félagslegu tilliti og skilning barnanna á fjölþættum eiginleikum og mannlegri hæfni. Hér er fengist við leiðtogahæfileika og hæfni til að þora að standa fyrir sínu máli. Næstu vikurnar verður lögð áhersla á að búa til sterka sjálfsmynd, hjá börnum sem geta allt sem þau vilja. Sérstök áhersla verður að hvetja stúlkurnar að þenja út brjóstkassann og læra að taka sitt olnbogarými . Við ætlum að brjóta hugarramma og víkka út kynjaímynd, gera óvenjulega hluti, fara út fyrir þægindarammann og leyfa sér að mistakast. Því öllum mistekst eitthverntíman, það gengur bara betur næst J

© 2016 - Karellen