Innskráning í Karellen
news

Hjálpsemi orð vikunnar❤️

18. 11. 2022

Áfram höldum við í Samskiptalotunni okkar. Orð vikunnar er orðið "Hjálpsemi ". Að kenna þessa dyggð er okkur afar mikilvægt og gefandi. Eins og mörg ykkar vita að þá er hjálpsemi að verða öðrum að liði, gera gagnlega hluti sem geta skipt sköpum. Hjálpsemi felst í því að gera eitthvað fyrir aðra sem þeir geta ekki gert sjálfir. Smáviðvik geta gert lífið auðveldara og skemmtilegra bæði fyrir þann sem veitir hjálpina og fyrir þann sem þiggur aðstoðina. Hjálpsemi snýst um að gefa fólki það sem það þarfnast, ekki einungis það sem það vill. Hjá öllum geta komið tímar sem við þurfum á aðstoð að halda og þá er nú gott að geta beðið um hjálp. Við æfum okkur í hjálpsemi með því að vera vakandi fyrir þörfum annarra. Með því að vera vakandi fyrir því hvenær þarf að aðstoða vini, einstaklinga í fjölskyldunni og þá sem við þekkjum ekki. Við viljum vera dugleg í því að bjóða fram aðstoð þegar við sjáum að hennar er þörf. Þetta er áherslur í kynjanámskránni þessa vikuna.

© 2016 - Karellen