Kæru vinkonur og vinir
Þriðja vikan í sjálfstæðislotu hefst með þessum dásamlega mánudegi. Lotulykill vikunnar er "Öryggi". Að upplifa öryggi er flestum ef ekki öllum mjög mikilvægur þáttur í lífinu. Orðið öryggi er viðamikið og hefur verið víkkað út og síðan þrengt að ákveðnum samfélagslegum þáttum. Eitt dæmi er félagslegt öryggi sem börn og fleiri sækjast eftir innan vinahópsins og í umhverfinu. En til að sækjast eftir því er mikilvægt að kenna börnum að styrkja sjálfan sig, líða vel og hafa trú á eigin getu í stað þess að reyna að passa inní skammtað pláss- eins fyrir alla.
Í orðaforðakennlunni okkar þessa vikuna eru ,,litir’’ og ,,V’’ er hljóð/stafur vikunnar. Þula vikunnar er ,,Græn eru laufin’’ og söngvar vikunnar eru ,,Ding dong’’ og ,,Ég er gula blómið fína’’.
Eigið dásamlegan dag öll sem eitt