Innskráning í Karellen
news

Leyniatriði ❤️

13. 09. 2021

Á hverjum föstudegi höfum við söngfund. Miðeiningin, eða Bláikjarni og Rauðikjarni, eru saman og svo er elsta einingin, eða Grænikjarni og Gulikjarni með sinn söngfund. Yngstu börn skólans eru með söngfundi á sínum kjarna enn um sinn.

Stúlkur í Þ hópi og drengir í Þ hópi höfðu staðið í stífum æfingum í blöndun á leyniatriði sem þau frumfluttu á síðasta söngfundi. Hvert og eitt barn kom, sá og sigraði að sjálfsögðu.

Kynjanámskrá Hjallastefnunnar fylgja daglegar samskiptaæfingar kynjanna eða svonefnd kynjablöndun þar sem samvinna, samvera og gagnkvæm virðing er þjálfuð.

Utan blöndunar er rætt jákvætt og upphefjandi um hitt kynið og endanlegt markmið kynjaskipts skólastarfs ere kynjablandað samfélag þar sem stúlkur og drenigr og menn og konur geta leikið saman, unnið saman, búið saman og enginn geldur fyrir kynferði sitt. Þá mun áhugi hvers og eins ráða ferðinni fremur en hefðbundnar kynjamyndir.

Við viljum þjálfa stúlkur og drengi í framkomu þar sem réttur hvers einstaklings er virtur, við þjálfum aga, nærgætni, dirfsku og þor, kærleiksríka framkomu og samkennd.

© 2016 - Karellen