Innskráning í Karellen
news

Hnoðraholt opnar á ný

04. 01. 2017

Hnoðraholt opnaði aftur eftir jólafrí 2 janúar og mættu þá bæði starfsfólk og börn endurnærð og glöð í hús. Það er ómetanlegt að sjá börnin ykkar koma svona kát til baka og fréttist af stúlku sem klappaði saman litlu lófunum sínum þegar bíllinn stoppaði fyrir utan Hnoðraholtið.

Ný eining tók til starfa og 24 börn hafa nú hafið aðlögun sem gengur vonum framar. Iðnaðarmenn og -konur hafa unnið þrekvirki og húsnæðið svo hlýlegt og gott í Vesturhúsi.
Núna eru því fjórir kjarnar á Hnoðraholti, Gulikjarni og Grænikjarni á sínum gamla stað en Rauðikjarni og Bláikjarni eru í Vesturhúsi.

Við óskum ykkur gleðilegs árs kæru fjölskyldur og hlökkum til komandi tíma með dásamlegu börnunum ykkar.



© 2016 - Karellen