Á síðasta degi jóla, 6. janúar er hefð fyrir því í Hnoðraholti að hafa sparifatadag og þá mega börnin mæta í sparifötum eða í borgaralegum klæðnaði eins og einn góður kennari orðaði það. Það eru þó alltaf börn sem vilja bara mæta í sínum skólafötum og það er í boði líka. En það er ekki í boði að mæta í búningum, við geymum þá til öskudags :)