Innskráning í Karellen

Garðabær og RannUng (Rannsóknarstofa í menntunarfræðum ungra barna), hafa gert samstarfssamning vegna innleiðingar ákvæða Barnasáttmála Sameinuðuþjóðanna um réttindi barnsins (2013) í leikskóla Garðabæjar.

Innleiðingin felur í sér átta skref sem miða að því að virða og uppfylla réttindi barna en skrefin eru staðfesting sveitafélags um innleiðingu sáttmálans. Verkefnið verður sem fyrr segir unnið í samvinnu leikskólanna og RannUng sem starfrækt er við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Þátttakendur á vegum RannUng eru; Dr. Sara M. Ólafsdóttir dósent, Dr. Anna Magnea Hreinsdóttir aðjúnkt, Dr. Kristín Karlsdóttir dósent og Margrét S. Björnsdóttir aðjúnkt og starfsmaður RannUng.

Markmið verkefnisins er að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins í leikskóla Garðabæjar en þátttakendur verkefnisins eru allir leikskólar í Garðabæ og munu þeir vinna saman að innleiðingu Barnasáttmálans. Stuðst verður við verkefnið Barnvæn sveitafélög, sem er alþjóðlegt verkefni UNICEF og er hannað til að veita sveitafélögum stuðning, fræðslu og ráðgjöf við innleiðingu sáttmálans með markvissum hætti.

Verkefnið hefur skýra tengingu við menntastefnu og jafnréttisstefnu Garðabæjar. Um er að ræða mikinn ávinning fyrir skólasamfélagið í Garðabæ, einkum og sér í lagi fyrir börn þar sem réttindi þeirra séu höfð að leiðarljósi í virkri framkvæmd þar sem að allir þekki þau og virði.

© 2016 - Karellen