Gulikjarni
Kjarnastýra: Ráðhildur Anna Sigurðardóttir
Símanúmer: 771-4758
Gulikjarni er drengjakjarni og þar eru ljúfir og kátir þriggja til fjögurra ára drengir. Stóran hluta úr degi er drengjunum skipt í 3 hópa Þ-hóp, Æ-hóp og Ö-hóp og á hver hópur sinn fasta kennara allan veturinn. Í hópunum vinna drengirnir skemmtileg verkefni með kennurunum sínum og æfa sig til dæmis í framkomu, umhyggju, samskiptum, kjarki, myndmennt, umhverfismennt, vísindum og ótal mörgu öðru.
Daglega hittir hver hópur á Rauðakjarna vinahópinn sinn og jafnaldra, stúlkurnar á Grænakjarna.