Innskráning í Karellen
news

Sumarð er tíminn ❤️

26. 04. 2024

Það má með sanni segja að þegar sú gula lætur sjá sig og lognið fer hægt yfir að sólin í hjarta margfaldast. Það má eiginlega segja að vindurinn sjái frekar til þess að yfirhafnir barnanna fjúki af þeim á útisvæðinu.

Síðustu tvo föstudaga höfum við haldið söngfund úti og nú síðasta föstudag fengum við sjálfa Margréti Pálu til að stýra söngfundi. Það er nefnilega alltaf svo gaman að fá hljóðfæri og nýjan söngfundastjóra af og til.

Sumarverkin eru líka hafin hjá okkur en eins og myndir sýna kom nýr sandur í sandkassann og ekki vantaði gleðina og aðstoðina hjá börnunum við að þjappa sandinn.

© 2016 - Karellen